Höfundur þessa spuna hefur ákveðið að algjörlega hundsa tilvist 6.bókarinnar.
Severus Snape var ekki
mikið fyrir jólagleði. Í sannleika sagt, var
hann ekki fyrir neina gleði. Þótt að stríðið
væri búið breytti það ekki því
að hann var ennþá ósanngjarn, leiðinlegur,
fúllyndur og með mikið skap. Hann hafði ekkert
batnað, ekki hið allra minnsta. Reyndar hafði hann, öllum
að óvörum, samþykkt að taka Hermione
Granger að sér sem lærling í töfradrykkjum.
Hún komst svo að því að það var
ekkert jákvætt við félagsskapinn, eingöngu
þekkingin sem hún fékk.
"Flýttu þér
með þetta! Skerðu þetta í minni bita! Þú
muldir þetta ekki nógu vel, núna blandast þetta
ekki nógu vel við! Passaðu þig að vera ekki
svona klaufsk!" var það helsta sem hann sagði við
hana.
"Prófessor," sagði hún einn daginn,
"væri þér sama þótt ég fengi
frí á morgun? Það eru nú einu sinni
jólin, ég hlýt að mega sleppa einum
kennsludegi."
"Jólin? Þau eru ekkert nema
peningaeyðsla og tímasóun!" urraði hann á
hana og hélt áfram að grúska í gömlum
skinnbindum með flóknum formúlum.
"En,
prófessor..." byrjaði hún, en þá var
dyrunum hrundið upp og inn kom Albus Dumbledore.
"Sitjið
þið ennþá hérna? Þið eruð
nú meiri... en ég hélt ykkur langaði að
vita það, við kennararnir ætlum að halda
saman upp á jólin á kennarastofunni á
morgun. Þér er guðvelkomið að mæta
Hermione," sagði hann og brosti. Eins og ávallt var hann
eins og jólasveinn eða lítið spennt
barn.
"Prófessor, má ég ekki fá frí?
Þú hlýtur að ætla í þetta
jólapartý," sagði Hermione spennt. Snape leit til
skiptis á lærlinginn sinn og vinnuveitanda sinn.
"Þú
mátt fá frí, en þú þarft að
mæta fyrr daginn eftir," urraði hann og skellti aftur
bókinni. Hermione og Albus brostu sínu breiðasta.
"Við
sjáumst þá á morgun," sagði
Dumbledore og gekk út. Ekkert meira gerðist þennan
daginn, þangað til Snape var á leiðinni í
herbergið sitt í skólanum. Hann hefði svo getað
svarið að andlitið á Luciusi Malfoy birtist í
myndinni sem var fyrir dyrunum hans. Greinilega hafði eitthvað
skrítið verið á blöðunum í
þessu handriti. Hann muldraði lykilorðið, gekk inn,
og hlammaði sér í stól fyrir framan arininn.
Fjandinn hafi það, hann nennti ekki að kveikja upp í
honum, engin ástæða til að vera hlýtt,
það var vetur, manni átti að vera kalt! Hann
stóð upp og leit á klukkuna. Hún var 10.
Hann gat alveg eins farið að sofa núna, hann hafði
ekkert betra við tímann að gera.
Hann hafði
legið í rúminu sínu í smá
stund þegar hann heyrði eitthvað hljóð.
Óþægilegt hljóð, sem gaf honum gæsahúð
og lét hárin á hnakkanum rísa.
"Hver
er þar?!" hrópaði hann. Ef þetta var einhver
að reyna gera at í honum var sá hinn sami í
slæmum málum!
"Sýndu þig, gungan þín!"
kallaði hann aftur. Ekki það viturlegasta sem hann
hafði gert um ævina, því í ljós
kom... draugur Luciusar Malfoys!
"Hvað í...?"
muldraði hann. Lucius hafði keðju á báðum
fótum og leit verr út en þegar hann var í
Azkaban.
"Þú ættir að vera glaður að
sjá mig, gamli vinur," sagði hann.
"Glaður? Af
hverju ákvaðstu að gerast draugur?" urraði Snape
á móti.
"Ég er ekki beint draugur, og það
var svo sannarlega ekki mitt val. Ég er andi. Og mér
fannst sanngjarnt að vara þig við," sagði Lucius.
Snape horfði tortrygginn á hann.
"Vara mig við
hverju?"
"Að það eru til verri staðir en
helvíti. Þú ert í raun og veru alveg
ágætur náungi, og ég vil ekki sjá
þig hljóta sömu örlög og ég. Sjáðu
til, þú hefur möguleika á að sleppa við
sömu örlög og ég, ég hef nefnilega á
tilfinningunni að þín verði verri," útskýrði
Malfoy. "Í nótt munu þrír andar
heimsækja þig. Þeir ætla að... sýna
þér svolítið. Ég mæli með
því að þú fylgist vel með, ég
vil ekki sjá þig fá sömu örlög og
ég," sagði Lucius. Svo hvarf hann.
"Þá
veit ég það, ég er að fara yfir um. Ég
sé anda út um allt!" muldraði Snape og henti sér
aftur á bak í rúmið. Svo fór hann að
sofa.
Það ómaði um allan skólann
þegar klukkan sló eitt. Severus Snape bylti sér í
rúminu. Honum fannst eins og einhver væri að stara á
hann. Hann opnaði annað augað og settist snögglega
upp í rúminu. Ójú, það var
einhver að stara á hann. Hann gat svo svarið það,
það var Peter Pettigrew!
"Hver í... hvað
í... af hverju í ósköpunum...?" stundi
hann upp.
"Ég á að sýna þér
jól fortíðarinnar. Komdu," sagði hann. Snape
hélt áfram að stara.
"Við höfum ekki
alla nóttina Snape. Komdu þér á lappir,"
sagði Pettigrew. Snape fór hægt úr rúminu.
Þetta var einfaldlega draumur og ekkert annað. Það
gat ekki verið að þetta væri raunveruleikinn!
Hann fór nær Pettigrew og andartaki seinna voru þeir
staddir í setustofu Slytherins.
"Af hverju fórstu
með mig hingað? Það er enginn hérna,"
sagði Snape.
"Jú... þú," svaraði
Pettigrew. Snape leit í kringum sig, og viti menn! Hann sá
sjálfan sig... 13 ára. Sitjandi út í
horni. Það voru jólaskreytingar í stofunni,
en enginn jólaandi.
"Af hverju... æi," hvíslaði
Snape. Pettigrew kinkaði kolli.
"Ég var hérna
á öllum jólum. Pabbi vildi ekki einu sinni reyna
að hafa samband við mig eða fá mig til að koma
heim. Ég held að mamma hefði alveg viljað það,"
hvíslaði Snape. Pettigrew kinkaði kolli. Snape skyldi
hvar þeir voru, þetta voru minningar sem hann hafði
algjörlega útilokað. Hann fékk tilfinningu
eins og þegar hann fór með ferðalykli, og
andartaki seinna horfði hann yfir Stóra salinn. Það
var jólaball! Þetta var á 7.árinu hans.
Hann gat séð sjálfan sig, sitjandi út í
horni og reynandi að drepa alla með augnaráðinu.
"Sjáðu!
Lily!" benti Pettigrew á. Lillian Evans var augljós í
mannfjöldanum, rautt hárið stóð út
úr hópnum. Hún nálgaðist hann
varlega.
"Severus?" hvíslaði hún varlega.
Fortíðar-Snape gjóaði augunum á
hana.
"Hvað?" sagði hann á milli samanbitinna
tannanna.
"Komdu að dansa, þú ert að missa
af allri skemmtuninni!" sagði hún brosandi. Hann hristi
höfuðið.
"Var ég ekki búinn að
segja þér að ég vildi ekki að þú
talaðir aftur við mig. Sagði ég ekki að þú
ættir einfaldlega að drulla þér burt?"
hvæsti hann á hana.
"En, Severus..." byrjaði
hún. Nútíðar-Snape gat séð
hvernig tárin hrönnuðust upp í fallegu augunum
hennar.
"Burt. Ég vil aldrei þurfa að tala við
þig aftur," sagði fortíðar-Snape og gekk
hranalega í burtu.
"Hvernig gat ég gert henni
þetta?" hvíslaði nútíðar-Snape.
Enn önnur minning kom í ljós. Þeir voru í
kirkjugarði. Allt var grátt og dapurlegt, það
rigndi og drungaleg ský voru yfir öllu. Þarna var
aftur fortíðar-sjálfið hans, grátandi
yfir gröf móður sinnar. Einu manneskjunni sem hafði
nokkurntímann elskað hann.
"Viltu hætta þessu!
Ég vil ekki sjá meira af þessari fortíð!"
hrópaði hann á Pettigrew. Hann kinkaði
einfaldlega kolli og Snape var aftur staddur í herberginu
sínu.
"Þetta... jeminn eini. Þetta var
ekkert nema martröð!" stundi hann upp og settist á
rúmið sitt. Svo stífnaði hann upp þegar
hann leit á klukkuna. Hún var aðeins yfir tólf!
Jú, núna var hann sannfærður um að þetta
væri draumur... alveg þangað til hann var næstum
sofnaður og klukkan sló eitt, aftur.
"Severus...
Severus Snape!" var hvíslað. Hann leit í kringum
sig og sá Bellatrix Black horfa glottandi á sig.
"Gaman
að sjá þig aftur," sagði hún.
"Hvað
ætlar þú að sýna mér?"
muldraði Snape.
"Ekkert sem þú hefur ekki séð
áður. Einfaldlega nútíðina og hvernig
lífið er hjá öðrum á þessu
andartaki," útskýrði hún. Snape kinkaði
hægt kolli þótt hann var ekki alveg viss um hvað
hún var að tala um, en hann myndi sennilega komast að
því. Hún glotti meira, en svo voru þau
stödd í fátæklegu húsi. Snape
kannaðist næstum því við það.
"Hvar
erum við?" spurði hann lágt.
"Þú
sérð það bráðum," svaraði hún
og hélt áfram að glotta. Tveir rauðhærðir
strákar komu inn í herbergið.
"Heldurðu
að henni eigi eftir að batna?" spurði sá stærri.
Hinn hristi höfuðið.
"Weasley-fjölskyldan!"
hrópaði Snape. Það voru Bill og Charles sem voru
að tala saman. En að hverri batnaði? Hann hugsaði sig
aðeins um, en svo kom það í ljós...
Ginerva! Auðvitað, hún hafði hlotið einhverja
bölvun frá Voldemort í lokabardaganum þegar
hún var að verja Potter. Hann hafði dáið
við það að drepa hinn myrka herra, en ætlunarverkið
hafði samt tekist. Voldemort hafði dáið ásamt
hundruðum af drápurum, þar á meðal
Luciusi, Bellatrix og Pettigrew. En af hverju var ekki allt í
lagi með Weasley-stelpuna? Hann hafði reyndar ekki skipt sér
neitt af henni eftir bardagann, en hann hefði nú samt
haldið að henni myndi batna.
"Strákar, ekki segja
þetta! Haldið í vonina, það verður
allt í lagi með hana," sagði Hermione Granger. Þeir
svöruðu ekki, en Snape og Bellatrix eltu Hermione upp í
herbergi Ginervu. Snape greip andann á lofti, hún var
náföl! Það var eins og allt líf hefði
verið sogað úr henni.
"Hérna Ginny.
Drekktu þetta," sagði Hermione og rétti henni
bolla af einhverju.
"Takk fyrir," hvíslaði Ginny á
móti. Hún reyndi að brosa, en það tókst
ekki alveg.
"Hún deyr ef ekkert er gert. Prófessor
Dumbledore hefur reynt allt sem hann getur, en ekkert tekist. Þú
gætir hjálpað henni ef þú vildir,"
sagði Bellatrix.
"Hermione... he-hefurðu fundið
eitthvað í bókunum hans Snapes?" hvíslaði
Ginny aftur með augun full af von. Hermione hristi
höfuðið.
"Elsku Ginny, leyfðu mér að
spyrja hann. Hann myndi örugglega vilja hjálpa til,"
sagði Hermione.
"Hann hataði mig og Harry. Ég...
ég get í raun og veru ekki ímyndað mér
að hann myndi vilja hjálpa mér, ég hef ekki
beinlínis verið skemmtileg við hann gegnum árin,"
svaraði Ginny.
"Hann er góður, í alvöru.
Innst inni," sagði Hermione stolt.
"Það er hvort
eð er örugglega orðið of seint núna. Ég
hef séð svipinn á Bill og Charlie, þeir eru
ekki jafn vongóðir og þeir voru. Jafnvel mamma er
farin að missa vonina," hélt Ginny áfram. Snape
fann tárin í augum sínum.
"Ég man
eftir henni síðan hún var í skóla.
Hún var alltaf full af lífi og mjög gáfuð,
þrátt fyrir að vera vandræði. Hún á
skilið að lifa áfram, hún var svo full af
lífi!" sagði hann við Bellatrix. Hún kinkaði
kolli.
"Þú heldur að ég viti það
ekki? Það var hún sem drap mig, fjandinn hafi það!"
urraði Bellatrix. "En samt, þá ætti hún
eftir að gera frábæra hluti í lífinu...
ef hún lifir!" Gat konan ekki hætt að glotta eitt
andartak?
"Þú skalt vara þig. Það
að útiloka aðra er ekki alltaf besti kosturinn. Heldur
ekki sjálfselsk löngun í eitthvað." Svo var
hann aftur kominn í rúmið sitt.
"Ég
er að verða brjálaður," hvíslaði
hann. Klukkan var rétt yfir tólf. Hann fann kaldan gust
fara um herbergið sitt. Hvað var núna að
gerast?
"Komdu sæll," var hvíslað. Ískalt
hvískur sem gaf honum gæsahúð. Hann þekkti
þessa rödd hvar sem er. Þetta var hann, hinn myrki
herra, Voldemort!
"Viltu sjá framtíð þína?"
hvíslaði hann áfram. Hvert orð stakk eins og
grýlukerti.
"Ég... nei. Ég held ég
vilji ekki sjá hana!" stamaði Snape. Honum var alls ekki
að lítast á blikuna.
"Það var nú
slæmt. Þú hefur nefnilega ekki val," svaraði
Voldemort. Kaldur gustur fór aftur um hann og svo var hann
staddur í kirkjugarði. Voldemort benti á eina
áttina, öll Weasley-fjölskyldan var saman komin
þarna, hágrátandi. Á legsteininum stóð
"Ginerva Weasley, meðlimur Fönixreglunnar, megi hún
nú hvíla í friði eftir hræðileg
raun.
"Hann hefði getað hjálpað henni...
það var ekki of seint..." hvíslaði Artúr.
Hin kinkuðu kolli. Snape hristi höfuðið.
"Nei!
Það getur ekki verið!" hvíslaði hann. Hann
fylgdist með fjölskyldunni fara í burtu. Snape hristi
höfuðið, þetta gat ekki verið að gerast.
Nei, þetta var ekki að gerast! Þetta var bara möguleg
framtíð, ekki eitthvað sem átti eftir að
gerast endilega, hann gat breytt þessu.
Voldemort benti í
aðra átt. Þar voru tveir menn að grafa.
"Hana
nú! Tökum okkur smá hvíld, það er
ekki eins og skarfurinn fari eitthvað," sagði annar. Það
var Hagrid!
"Hann ætti nú eiginlega alveg skilið
að rotna hérna án þess að láta
moka yfir sig, en það er ekki sanngjarnt að aðrir
þurfa að þola fýluna," sagði hinn. Það
var Michael Corner, strákur sem hafði verið með
Ginervu einhverntímann.
"Hárrétt, fyrir
allt það sem hann hefur gert. Og ekki gert!" sagði
Hagrid og fór í burtu með Corner á eftir
sér. Snape færði sig nær. Um hvern voru þeir
að tala og hver átti þessa gröf?
"Merlin
hjálpi mér!" stundi hann þegar hann sá
nafnið. Severus Snape, töfradrykkjameistari, fyrrverandi
drápari og meðlimur Fönixreglunnar. Hvað
hafði hann gert af sér í lífinu? Hann leit
upp á hvíta grímu Voldemorts. Hann hreyfði
höndina, ætlaði hann að benda honum á
eitthvað meira?
"Hvað nú? Er... AAAAA!" öskraði
hann þegar honum var hrint ofan í sína eigin
gröf!
"Nei! Ég vil ekki deyja svona! NEI!"
öskraði hann og barðist um í rúminu sínu
og flæktist í sængurfötunum. Svo róaðist
hann niður. Hann var öruggur, hann var í rúminu
sínu, hann var í Hogwarts... hann var með hræðilegt
samviskubit! Ef þetta var framtíðin sem beið
hans, þá ætlaði hann að breyta henni!
Ginerva Weasley var ung og átti allt lífið
framundan. Hann vissi hvaða bölvun hefði verið
kastað á hana, hann gæti gert móteitrið.
Hann vissi hvar formúlan var geymd, hann gæti klárað
móteitrið fyrir áramót jafnvel! Hann stökk
úr rúminu og hljóp af stað í áttina
að bókasafninu. Á leiðinni rakst hann á
McGonagall.
"Gleðileg jól!" hrópaði hann
og kyssti hana á kinnina, svo hélt hann áfram að
hlaupa eins og hann ætti lífið að leysa. Eða
eins og djöfullinn væri á hælum hans, en bæði
var rétt, hann var að hlaupa til að bjarga lífi
Weasley-stelpunnar og til að hann endaði ekki sem... já,
djöfull.
"Hvar er þessi bók... hvar er hún...
ég veit að hún er hérna... hún er...
aha!" hrópaði hann og greip þykka bók úr
einni hillunni. Hann var í forboðnu deildinni á
bókasafninu þar sem allt var fullt af ryki og
svartagaldri. Hann fletti æstur gegnum bókina þangað
til hann fann rétt síðuna, merkti hana með
bókamerki, lét bókina undir hendina og hljóp
svo í burtu á sama hraða og hann hafði komið
á. Hana nú, hvað hét aftur húsið
sem Weasley-fjölskyldan bjó í... Húsið,
Kofinn, Hásetinn... nei... það byrjaði á
H hann vissi það...
"Hreysið!" kallaði hann
og fluttist gegnum arininn. Svo kom hann bröltandi út um
arininn hjá Weasley-fjölskyldunni.
"Gleðileg
jól!" sagði hann og skellti bókinni á
borðið og opnaði hana hjá bókamerkinu.
"Þetta
getur bjargað henni, það er hægt að klára
þetta fyrir áramót ef það er byrjað
strax á þessu!" sagði hann og brosti út að
eyrum. Það var alveg helvíti góð
tilfinning að gera eitthvað svona. Reyndar, þá
var starað á hann á mjög undarlegan
hátt...
"Hver lét hann undir stýribölvun?"
muldraði Bill til mömmu sinnar. Hún bandaði honum
eitthvað með hendinni.
"Bjargað henni? Hvernig? En
það kostar svo að kaupa efnið í þetta,
þetta er áreiðanlega flókið, og..."
sagði hún hrædd.
"Skítt með
peningana, ég get alveg borgað þetta! Ég hef
allavega eitthvað að gera á milli jóla og nýárs
þar sem lærlingurinn minn verður í fríi,"
sagði hann og leit á Hermione. Hún hafði
greinilega verið þarna yfir nóttina. Hún
starði á hann, en var samt nær því að
brosa en allir aðrir við borðið.
"Ég
ætlaði bara að láta ykkur vita, en ég
þarf að fara núna, ég held að ég
sé að missa af jólaboði á
kennarastofunni!" sagði hann og var næstum því
farinn í gegn, þegar hann mundi...
"Ætlar þú
að koma, Hermione?" Hún hafði oft beðið hann
að kalla sig Hermione, en hann hafði aldrei viljað það
þar til núna.
"Rétt bráðum... ég
ætla bara að segja Ginny þetta," stundi hún
upp. Snape brosti. Það var skrítið að nota
þessa vöðva í andlitinu aftur, en til að
segja ykkur sannleikann, þá hafði hann saknað
þess sárlega að hafa ekkert til að brosa yfir í
meira en tuttugu ár!
